Hraunsás III – Vinnslutillaga aðalskipulagsbreytingar

Hraunsás III – Vinnslutillaga aðalskipulagsbreytingar

Í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst vinnslutillaga á breytingu Aðalskipulags Borgarbyggar 2010-2022.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 9. október að auglýsa vinnslutillögu að aðalskipulagsbreytingu fyrir Hraunsás III í Hálsasveit í Borgarbyggð.

Fyrirhugað er að breyta landnotkun svæðis í landi Hraunsáss 3 (L204514) úr frístundabyggð í verslunar- og þjónustusvæði. Aðkoma að svæðinu er frá Hálsasveitarvegi (NR 518).

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 599/2024) frá 24. október til og með 8. nóvember 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við vinnslutillöguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á vinnslutillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 24. október, 2024.