Borgarbraut 55 – Deiliskipulagsbreyting

Borgarbraut 55 – Deiliskipulagsbreyting

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagsbreytingu í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 4. október 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Borgarbrautar 55, 57 og 59 frá árinu 2007 m.s.br.

Tillagan á við um lóðina Borgarbraut 55. Byggingarskilmálum er breytt á þann veg að bygging verður að hámarki 2 hæðir í stað þriggja og afmörkun byggingarreits breytist en nýtingarhlutfall helst óbreytt. Legu bílastæða er breytt til samræmis við breytingu á byggingarreit. Vegtenging er aftur sett við Kjartansgötu. Tillagan samræmist gildandi aðalskipulag.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 1215/2024) frá 16. október til og með 27. nóvember 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 16. október, 2024.