Sigmundarstaðir, mælimastur á Grjóthálsi – Nýtt deiliskipulag

Sigmundarstaðir, mælimastur á Grjóthálsi – Nýtt deiliskipulag

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulags laga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 7. júní 2024 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi í landi Sigmundarstaða (L134748) fyrir tímabundnu mælimastri til vindrannsókna.

Tillagan tekur til svæðis innan jarðarinnar Sigmundarstaðir L134748, þar sem áætlað er að reisa tímabundið mælimastur til vindrannsókna. Mastrið sem um ræðir er stálgrindamastur, þríhyrnt með 48 cm breiðum hliðum. Mastrið er allt að 98 m hátt með stögum sem ná allt að 60 m út frá mastrinu. Áætlað er að mastrið standi í 2 ár. Aðkoma að svæðinu er um 350 m frá veginum yfir Grjótháls, Grjótsvegi. Aðkoma að mastrinu er um 365 m bráðabirgðaslóða sem liggur frá Grjótsvegi og að mastrinu. Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 20. júní til og með 8. ágúst 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með athugasemd eða ábendingu við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum og ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir og ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 27. júní, 2024.