Langárbyrgi veiðihús við Langá – Lýsing á deiliskipulagi
Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 10. október 2023 að auglýsa lýsingu á deiliskipulagi fyrir Langárbyrgi veiðihús í landi Jarðlangsstaða í Borgarbyggð.
Lýsingin tekur til 13.688,3 m2 lóð Langárbyrgis veiðihúss (L177317) á Jarðlangsstöðum. Á lóðinni er 711 m2 veiðihús sem fyrirhugað er að stækka í 1000 m2. Aðkomuvegur er út frá Stangarholtsvegi (536) og gert ráð fyrir að það verði óbreytt. Áætlunin samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Ofangreind skipulagslýsing er auglýst í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 16.10.23 til og með 30.10.23. Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í Skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á vinnslutillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.
Borgarbyggð, 16. október 2023
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar