Byggingar- og skipulagsmál
Á skipulags- og byggingardeild Borgarbyggðar eru bæði starfandi byggingarfulltrúi og skipulagsfulltrúi. Svið fulltrúanna skarast nokkuð en í grunninn má segja að allt sem tilheyrir byggingunum sjálfum er á hendi byggingarfulltrúa og allt sem tilheyrir landinu og skipulagi þess heyrir undir skipulagsfulltrúa.
Í Borgarbyggð er gildandi aðalskipulag frá árinu 2010 og er í ferli endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar (2025-2037) sem hefur sína síðu með frekari upplýsingum. Í sveitarfélaginu eru í gildi deiliskipulög fyrir einstök svæði innan sveitarfélagsins en allt landið er skipulagsskylt skv. skipulagslögum (12. gr. laga nr. 123/2010). Ef breyta á gildandi skipulagi eða skilgreina ný er sótt um það til skipulagsfulltrúa og þær tillögur síðan auglýstar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á heimasíðu Borgarbyggðar (skipulagsauglýsingar).
Í sveitarfélaginu eru yfir 5000 fasteignir, 146 frístundasvæði og nokkrir þéttbýliskjarnar en þeir stærstu eru Borgarnes og Hvanneyri. Sækja þarf um leyfi til bygginga húsa eða annarra mannvirkja, þegar breyta á húsum, útliti þeirra, formi eða notkun. Sótt er um slík leyfi til byggingarfulltrúa.
Símatímar – Smelltu hér:
Hjá byggingardeildinni eru sem hér segir:
- Mánudaga frá kl. 09:30 – 11:30.
- Miðvikudaga frá kl. 09:30 – 11:30.
- Fimmtudaga frá kl. 09:30 – 11:30.
Viðtalstímar á staðnum – Smelltu hér:
Þarf að bóka með dagsfyrirvara með því að senda tölvupóst.